Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Eleanor og Park

Forsíða kápu bókarinnar

Heimilislíf Eleanor er í algjöru uppnámi. Svo er hún nýja stelpan í skólanum og fellur alls ekki inn í hópinn; ósamstæð föt úr Rauðakrossbúðinni, úfnar rauðar krullur …

Heimilislíf Eleanor er í algjöru uppnámi. Svo er hún nýja stelpan í skólanum og fellur alls ekki inn í hópinn; ósamstæð föt úr Rauðakrossbúðinni, úfnar rauðar krullur … hún gæti ekki stungið meira í stúf þó hún reyndi.

Svo sest hún við hliðina á Park í skólabílnum. Hann er hljóðlátur, framandi og – í augum Eleanor – óendanlega svalur. Park hefur áttað sig á því að besta leiðin til að þrauka skólann er að láta lítið fyrir sér fara

Smám saman, eftir samræður síðla kvölds, tónlist og myndasögur verða Eleanor og Park ástfangin. Þau verða ástfangin eins og maður verður í fyrsta skipti, þegar maður er sextán ára og hefur engu að tapa. Eða öllu.