Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Eyja

  • Höfundur Katrine Engberg
  • Þýðandi Friðrika Benónýsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Jeppe Kørner er í leyfi á eyjunni Borgundarhólmi og Anette Werner er því einni falið að stýra rannsókninni á sundurlimuðu líki sem fannst í tösku grafinni í jörð á leikvelli í miðbænum. Rit­höfundurinn Esther de Laurenti kemur við sögu og brátt kemur Jeppe líka til skjalanna og við tekur rannsókn á ískyggilegu leyndarmáli sem á rætur í fortíðinni.

Eyja er fjórða bókin sem kemur út á íslensku í Kaupmanna­hafnarseríunni eftir Katrine Engberg um lögregluforingjana Jeppe Kørner og Anette Werner. Bækurnar hafa slegið í gegn og vermt efstu sæti vinsældalista víða um heim. Tilnefnd til Mofibo-verðlaunanna sem glæpasaga ársins í Danmörku. Friðrika Benónýsdóttir þýddi.

„Nordic noir-meistaraverk.“

Booklist

„Þessi bók heltekur mann.“

Publishers Weekly

„Engberg skrifar af miklum krafti og lifandi stíls máti hennar nýtur sín í ljóðrænum lýs-ingum og lúmskum, stríðlyndum húmor ... Fáir eru henni fremri í að búa til flott plott.“

Berlingske Tidende