Farðu um jólin

Forsíða kápu bókarinnar

Æsispennandi jóladagatal! Ísabella og Lúkas eru erkióvinir en neyðast til að vinna saman þegar mamma hennar og pabbi hans byrja að deita. Jólin nálgast og það síðasta sem þau vilja er að verja þeim saman. Þau beita því ýmsum brögðum til að reyna að fá foreldra sína til að hætta saman.

En tekst þeim það áður en klukkurnar hringja inn jólin?

Farðu um jólin er fjórða bók hinnar tvítugu Emblu Bachmann. Fyrir fyrri bækur sínar hefur Embla verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Sagna: Verðlaunahátíðar barnanna. Embla hefur einnig hlotið Vorvinda IBBY á Íslandi fyrir framlag sitt til barnamenningar, verið í hópi Framúrskarandi ungra Íslendinga og hlotið Íslensku hljóðbókaverðlaunin.