Fólk sem við hittum í fríi

Forsíða bókarinnar

Poppy og Alex eiga ekkert sameiginlegt. Hún er óhemja og hann klæðist kakíbuxum. Hún er haldin óforbetranlegri útþrá, honum líður best heima með bók. Þó hafa þau verið bestu vinir, síðan örlagarík bílferð leiddi þau saman á leið heim úr skólanum fyrir löngu síðan.

Lengst af hafa þau búið langt hvort frá öðru – hún í borgarlífi New York og hann í smábænum þar sem þau ólust upp. En hvert einasta sumar í áratug hafa þau farið í vikulangt dásemdar frí saman.

Þangað til fyrir tveimur árum, þegar þau eyðilögðu allt. Síðan hafa þau ekki talast við.

Nú hefur hún eina viku til að kippa öllu í lag. Ef henni bara tekst að forðast risavaxinn sannleikann sem alltaf hefur staðið þögull í hjarta vináttunnar, sem annars virðist fullkomin. Hvað gæti svo sem klikkað?

#1 á metsölulista New York Times

Hjartnæmur, fyndin og blíður flótti sem þú vildir að gæti varað að eilífu. - Jodi Picoult, metsöluhöfundur.

Ó, fólk sem við hittum í bókum sem eru eins og frí. - Washington Post