Fótboltaspurningar 2026
Þetta er ómissandi bók fyrir öll þau sem áhuga hafa á vinsælustu íþróttagrein í heimi, knattspyrnunni. Hér er spurt um íslenska boltann, enska boltann, Meistaradeildina, Evrópudeildina, Sambandsdeildina og svo auðvitað HM-karla sem haldin var sumarið 2026, sem og fleira.
Hvaða ítalska lið ber meðal annars gælunöfnin „Gamla konan“ og „Sebrahestarnir“?
Hvaða franska framherja keypti Liverpool frá Eintracht Frankfurt sumarið 2025?
Hvaða félag hefur hreiðrað um sig í Úlfarsárdal?
Hvert er millinafn norsku markamaskínunnar Erling Haaland?
Hvaða leikmaður Manchester United átti flestar stoðsendingar í Úrvalsdeildinni keppnistímabilið 2025-2026, eða 21 stoðsendingu, sem þess utan er met í deildinni?
Hvaða íslenska knattspyrnukona sneri heim úr atvinnumennsku sumarið 2026 og gekk í raðir uppeldisfélags síns, Hauka, þrátt fyrir að liðið léki í næstefstu deildinni, Lengjudeildinni?
Þetta er bara örlítið brot af þeim spurningum sem bíða þín í Fótboltaspurningum 2026.