Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Frontur

  • Höfundar Johan Hurtig Wagrell og Johanna Hurtig Wagrell
  • Þýðandi Friðrika Benónýsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Taugatrekkjandi, nýstárleg og marglaga spennusaga í nýrri spennubókaröð Hurtig Wagrell. Hjónin Johan og Johanna Hurtig Wagrell tefla hér fram sinni fyrstu spennusögu, sem hefur hlotið frábærar viðtökur í Svíþjóð og var m.a. tilnefnd til hinna virtu Crime-Time-verðlauna 2024.

1995 hverfur sextán ára stúlka, Gabriella Sorani – Gabby, sporlaust í Kalmar. Tuttugu og fimm árum síðar er málið enn óupplýst.

Í Stokkhólmi er sjónvarpsframleiðandinn Sanna Lundgren í erfiðum vanda eftir að þátttakandi í raunveruleikaþættinum sem hún vann við tók líf sitt í beinni útsendingu. Eftir áfallið býðst henni aðeins eitt verkefni, það er að snúa aftur til heimabæjar síns Kalmar og gera heimildarmynd um hið svokallaða Gabby-mál. Sanna sem var skólasystir Gabby er tilneydd að horfast í augu við drauga fortíðarinnar við vinnslu myndarinnar.

Á sama tíma er Elizabeth Hallman lögreglufulltrúi að búa sig undir að flytja frá Kalmar til að byrja nýtt líf í Stokkhólmi. En eftir því sem hún dregst lengra inn í rannsókn málsins verður erfiðara að færa sig um set.