Fullkomið hjónaband

Forsíða kápu bókarinnar

Sarah Morgan er einn besti verjandi í Washington, DC. Í næstum tvö ár hefur Adam, eiginmaður hennar, haldið ástarsambandi sínu við Kelly Summers leyndu, en allt breytist þegar lík hennar finnst í sumarhúsi hjónanna og Adam er handtekinn grunaður um morðið. Þó að Adam sé sekur um að sofa hjá Kelly er hann þá líka sekur um að myrða hana?

Sarah stendur nú frammi fyrir erfiðasta máli sínu hingað til; hún heitir því að verja eiginmann sinn - mann sem er sakaður um að hafa myrt ástkonu sína.

Jeneva Rose er alþjóðlegur metsöluhöfundur. Fullkomið hjónaband er fyrsta bók hennar og hefur farið eins og stormsveipur um heiminn, hún hefur komið út á meira en 30 tungumálum í rúmlega 40 löndum. Fullkomið hjónaband er hin fullkomna spennusaga.