Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Fyrsti bjórsopinn

og fleiri smálegar lífsnautnir

  • Höfundur Philippe Delerm
  • Þýðandi Friðrik Rafnsson
  • Myndhöfundur Jean-Philippe Delhomme
Forsíða kápu bókarinnar

Þessi litla perla franska rithöfundarins Philippes Delerm, fagurlega myndskreytt, sló hressilega í gegn þegar hún kom út í Frakklandi og hefur selst í meira en milljón eintökum þar í landi. Bókin hlaut frönsku Grandgousier-bókmenntaverðlaunin en þau eru veitt fyrir bækur sem lofa glaðlyndi og lífsins lystisemdir. Sannkallaður óður til Frakklands.

Í stuttum köflum beinir höfundur sjónum að upplifunum hversdagsins sem veita gleði og lífsfyllingu, hvort sem það er fyrsti bjórsopinn, ilmur af eplum eða lestur á bók eftir Agöthu Christie. Hrífandi frásögnin einkennist af barnslegri forvitni og fyndnum athugasemdum – og minnir okkur á að njóta og meta allt hið smáa sem auðgar lífið.

Franski verðlaunahöfundurinn Philippe Delerm (f. 1950) hefur sent frá sér yfir 30 bækur – skáldsögur, smásögur og ritgerðasöfn.