Gáttir

Heimsbókmenntir á Íslandi 1913 – 1943

Forsíða kápu bókarinnar

Fullveldisárin voru tímabil umróts í íslensku menningarlífi. Lögð var áhersla á að byggja upp kröftuga íslenska nútímamenningu og kynna nýjustu og mikilvægustu strauma alþjóðlegra bókmennta fyrir lesendum. Hér er sjónum beint að margbrotinni þýðingaútgáfu þessa tímabils þegar hugmyndin um heimsbókmenntir var að taka á sig mynd hérlendis.

Sjónum er meðal annars beint að straumum indverskra, pólskra, eistneskra, ungverskra, búlgarskra, jiddískra, kínverskra og japanskra bókmennta sem bárust íslenskum lesendum með einhverjum fyrstu þýðingunum á verkum þessara þjóðarbókmennta.