Gistiheimilið í Beroun

smásögur

Forsíða kápu bókarinnar

Enn ein varðan á leið höfundarins um lendur smásagna, en nú ber svo við að efni þeirra kallast á með sérstæðum hætti þótt ekki sé beinlínis hægt að segja að þær myndi sagnasveig. Í sautján sögum fær lesandinn innsýn í líf ólíkra persóna sem þó eiga ýmislegt sameiginlegt þegar betur er að gáð.

Tengsl á milli manna, vonbrigði, stefnuleysi og orðleysi, þegar á reynir, eru stef sem birtast iðulega í þessum sögum en með ólíkum blæbrigðum og áherslum. Og hvort sem lesandinn er leiddur inn í framandi smábæ í Tékklandi eða á vettvang löngu liðinna atburða í gömlu Reykjavík er óvæntu ljósi jafnan brugðið yfir sviðið og aldrei að vita hvort eða hvar saga getur endað.

Gyrðir Elíasson er mikilvirkasti smásagnahöfundur Íslendinga nú á tímum og nýlega hlaut hann hin virtu Zinklar-verðlaun sem veitt eru dönskum eða erlendum höfundi fyrir smásagnagerð. Gistiheimilið í Beroun er ellefta smásagnasafn hans.