Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Gleði skipbrotanna

Forsíða kápu bókarinnar

Ungaretti var eitt kunnasta ljóðskáld Ítala á liðinni öld. Hér birtist í fyrsta sinn á íslensku úrval ljóða úr þekktasta verki hans L'allegria nær 100 árum eftir birtingu þess á frummálinu. Inngang ritar Francesca Cricelli sem hefur rannsakað verk skáldsins um árabil.

Giuseppe Ungaretti (1888–1970) var eitt kunnasta ljóðskáld Ítala á liðinni öld. Með nýju og byltingarkenndu ljóðmáli tókst honum að tjá með einstökum hætti lífsreynslu fólks á umbrotatímum í Evrópu. Stíll hans er einfaldur, laus við mælskubrögð og ljóðin oftar en ekki stutt og hnitmiðuð, hlaðin merkingu með vísunum í ýmsar áttir.