Gleym mér ei

Forsíða kápu bókarinnar

Á hrekkjavökukvöldi í Reykjavík, undir stjörnubjörtum himni, er ekið á sjö ára stúlku á reiðhjóli. Bílstjórinn flýr af vettvangi og síðan er eins og jörðin gleypi hann. Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson lofar foreldrum stúlkunnar að hann muni finna þann seka, sama hvað það kosti.

Árin líða og Hörður glímir við önnur krefjandi sakamál, sem og áskoranir í einkalífinu. Sambúð hans og Bíbíar er enginn dans á rósum. Jafnvel einföld fyrirmæli um að fara út í búð og kaupa kóríander reynast Herði ofviða og honum tekst á sinn einstaka hátt að klúðra einföldustu hlutum.

En hann gleymir aldrei loforðinu og stúlkunni sem dó.

Þegar tíminn virðist vera að renna út og öll sund að lokast fara þræðir loks að tengjast og myndin að skýrast.

En er það of seint?

Hvaða verð greiðir sá sem flýr eigin samvisku? Eða sá sem neitar að sleppa takinu á gömlu sakamáli?

Gleym mér ei er fjórtánda bókin í hinni geysivinsælu glæpaseríu Stefáns Mána um sérlundaða lögreglumanninn Hörð Grímsson. Mögnuð spennusaga um samvisku, sekt og loforð sem verður að efna.