Gömlu ævintýrin löguð að rétthugsun samtímans

Forsíða bókarinnar

Í þessari frægu metsölubók hefur James Finn Garner endurskrifað sígildu ævintýrin fyrir meira upplýsta tíma – allt frá sambandi Mjallhvítar við sjö hávaxtarhamlaða karla og Rauðhettu, ömmu hennar og klæðskiptahneigða úlfsins til keisarans sem var ekki allsber heldur hlynntur klæðnektarvalfrelsi.

„Það viturlegasta og fyndnasta sem skrifað hefur verið um rétthugsun samtímans … Ómissandi lesning fyrir fullorðna á öllum aldri.“ – Observer

„Menningarviðkvæmar sögur þar sem öllum fordómum hefur verið útrýmt.“ – Daily Mail

„Eitt af þessum verkum sem tengir höfund samstundis við hjarta lesandans …

Dásamlegt.“ – The Times

„Martraðarkennd skemmtun ... nútímasögur um okkar líf og tíma.“ – Financial Times

„Gömlu ævintýrin vandlega endurskrifuð til að tjá enga skoðun.“ – Sunday Times