Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu

Forsíða kápu bókarinnar

Bókin hefur að geyma leiðarlýsingar tæplega 30 fjölbreyttra gönguleiða á höfuðborgarsvæðinu og í kringum það. Sumar leiðirnar liggja á fjöll, aðrar um menningar- og söguslóðir og enn aðrar umhverfis kyrrlát vötn, skóga, meðfram fjörum og um skrúðugt dýra- og plöntulíf. Margar leiðirnar henta einnig fyrir fjallahjól og utanvegahlaup.

Jónas Guðmundsson er gönguleiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur sem varið hefur ótal stundum á fjöllum og á göngu um náttúru landsins. Hann hefur áður skrifað bækurnar Gönguleiðir á hálendinu og Gönguleiðir á Reykjanesi. Þessi bók hentar öllum þeim sem vilja kynnast þeim fjölmörgu áhugaverðu stöðum sem finnast í bakgarði höfuðborgarsvæðisins. Hverri leið fylgir leiðarlýsing, kort og GPS-hnit, fjöldi ljósmynda og upplýsingar um staðhætti og aðstæður. Auk þess er settur fram sögulegur og landfræðilegur fróðleikur um þær leiðir sem gengnar eru hverju sinni. Í bókinni er einnig hagnýtur kafli um undirbúning og fjölda góðra ráða sem varða fjallgöngur og útivist.