Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands

Forsíða kápu bókarinnar

Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands hefur að geyma leiðarlýsingar hátt í 50 stuttra gönguleiða í námunda við þekkta áfangastaði í íslenskri náttúru. Oft má auðveldlega og á stuttum tíma færa sig frá fjölförnum stöðum og finna kyrrðina á göngu á fáfarnari slóðum rétt við náttúruperlur landsins.

Það er á færi flestra að ganga leiðirnar í bókinni enda eru þær flestar stuttar og auðvelt er að koma þeim inn í ferðadagskrána. Leiðirnar eru fjölbreyttar og liggja um fjöll og gil, að fallegum fossum og sögulegum minjum, meðfram ám og vötnum og um fjölskrúðugt dýra- og plöntulíf.

Jónas Guðmundsson er leiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur sem varið hefur óteljandi stundum á ferð um náttúru Íslands. Hann er höfundur þriggja metsölubóka um gönguleiðir vítt og breitt um land.

Gönguleiðir við náttúruperlur Íslands er ómissandi ferðafélagi þegar leggja skal land undir fót.