Halló, mín fagra
Áhrifamikil fjölskyldusaga um það sem getur gerst þegar við veljum að elska manneskju, ekki þrátt fyrir það hver hún er, heldur einmitt vegna þess.
„Þegar þú byrjar viltu ekki að sagan taki enda … og þú mátt eiga von á tárum.“ / Oprah Winfrey
Getur ástin gert brotna manneskju heila?
William Waters ólst upp á heimili sem harmleikur hafði breitt þögn yfir. Foreldrar hans gátu varla fengið sig til að líta á hann, hvað þá elska hann. Þegar hann kynnist hinni lífsglöðu og metnaðarfullu Juliu Padavano á fyrsta ári í háskóla er því eins og skyndilega birti til í kringum hann. Juliu fylgir gjörvöll fjölskylda hennar, enda eru hún og systur hennar þrjár óaðskiljanlegar. Hjá Padavano-fjölskyldunni kynnist William áður óþekktri lífsfyllingu; hvert augnablik á heimili þeirra einkennist af hlýju, ást og yndislegri óreiðu.
En þá skýtur myrkrið úr fortíð Williams aftur upp kollinum. Það ógnar ekki aðeins vandlega mótuðum framtíðaráformum Juliu heldur einnig þeirri órjúfanlegu tryggð sem bundið hefur systurnar saman. Afleiðingin er skelfilegur klofningur í fjölskyldunni sem markar líf hennar kynslóðum saman.
„Dásamleg og snilldarlega samin.“ / The New York Times
„Persónur Napolitano geta kramið hjarta þitt um leið og þær reyna að græða sín eigin.“ / Kirkus Reviews
„Napolitano fær okkur til að íhuga hin flóknu bönd fjölskyldukærleikans, sem geta haldið okkur saman þrátt fyrir sorg og missi. Hún hjálpar okkur að sjá okkur sjálf – og hvert annað – sem heild.“ / The Washington Post
„Þessi bók er eins og hlýtt teppi; þú skynjar umvefjandi mátt sögunnar og fyllist þakklæti yfir að hafa fengið að njóta hennar.“ / Vogue
„Stórbrotin fjölskyldusaga, full af fegurð. Napolitano skapar raunverulegar, breyskar persónur – og fær þig til að sjá heiminn í nýju ljósi. Svo dásamleg að þú mátt ekki láta hana framhjá þér fara.“ / Good Housekeeping