Harry Potter og blendingsprinsinn

(myndskreytt útgáfa)

Forsíða kápu bókarinnar

Harry Potter og Albus Dumbledore halda eina sumarnótt á vit framtíðar sem er ótrygg og váleg. Illskunni vex ásmegin. Galdramálaráðuneytið er í uppnámi og jafnvel Hogwarts er ekki lengur öruggt skjól.

Nemendur jafnt sem kennarar eru á varðbergi. Aðeins Draco Malfoy og áhangendur hans úr Slytherin virðast uppveðraðir og Dauðamerkið hangir á næturhimninum. Harry þarf að komast að því hverjum má treysta og hvern ber að varast. Sú stund nálgast þegar hann þarf einn að mæta örlögum sínum.

Levi Pinfold túlkar hér sjöttu bókina í ástsælum bókaflokki J.K. Rowling um Harry Potter og tekur við keflinu af Jim Kay sem áður veitti okkur töfrandi sýn á galdraheiminn. Allt frá samansafni silfuráhalda á skrifstofu skólameistarans að snjóslegnum stígum Hogsmeade og höfugs reyksins úr seiðpottum í stofunni hjá prófessor Slughorn magnar þessi meistaralega myndlýsta útgáfa upp marglaga undraveröld Harry Potter.