Hartman stórverslunin

Loforð í ljósaskiptunum

Forsíða kápu bókarinnar

Eftir stormasöm ár í London snýr Vera Hartman aftur heim til Stokkhólms til að sanna að hún eigi heima í fjölskyldufyrirtækinu – hinni víðfrægu Hartman-stórverslun. Við heimkomuna kemst hún að því að amma hennar hefur tekið upp samningaviðræður um yfirtöku við Elias Johansson, framkvæmdastjóra lágvöruverðsverslunar sem nýtur mikilla vinsælda.

Elias er með sína eigin áætlun: hann ætlar að hefna sín á Hartman-­fjölskyldunni fyrir það sem hún hefur gert fjölskyldu hans. Fljótlega kemur í ljós að í áætlun sinni sá hann ekki Veru fyrir. Hún er sjálfsörugg og klár og það reynist honum næstum ómögulegt að leiða hana hjá sér. Viðskipti og málefni hjartans eru flókin blanda og þegar Elias og Vera fara að dragast hvort að öðru verður sífellt meira í húfi fyrir þau bæði.