Hel
Guðrún Ýr Ingimarsdóttir er einstaklega fær rannsóknarlögreglumaður sem hefur ákveðna sérstöðu: hún drepur fólk.
Dagbók LÖGREGLU
Fasteignasali finnst myrtur á skrifstofu sinni í Borgartúni
Allt tiltækt lögreglulið kallað út vegna skotbardaga í Garðabænum
Maður stunginn með hnífi í Hamraborg og annar skotinn í hnakkann í Kringlunni
Hráslagalegur janúardagur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Guðrún Ýr Ingimarsdóttir er einstaklega fær rannsóknarlögreglumaður sem hefur ákveðna sérstöðu: hún drepur fólk.
Eftir fæðingarorlof snýr Guðrún aftur til vinnu, staðráðin í að lifa venjulegu lífi. Vera móðir. Vinna vinnuna sína. Skilja fortíðina eftir. En fortíðin lætur hana ekki í friði og fljótlega þarf Guðrún á allri sinni seiglu og styrk að halda.
Hel er sjálfstætt framhald glæpasögunnar Líf, sem kom út árið 2025 og var tilnefnd til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans.