Helvítis fantur ertu!
Gunnar Ingi Gunnarsson læknir leysir frá skjóðunni
Gunnar Ingi, lengi yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ og um tíma læknir á Slysavarðstofunni og Læknavaktinni, er með auga fyrir því skoplega í tilverunni en hefur líka séð dauðann í sinni óvenjulegustu mynd. Þá stóð hann sjálfur á bjargbrún tilverunnar af eigin völdum og stuttu síðar gerði undirheimamaður tilraunir til að koma honum fyrir kattarnef.