Hildur - lopapeysur
Einstaklega falleg og fjölbreytt prjónabók sem byggir á glæpasögunum um ísfirsku lögguna Hildi sem hafa farið sigurför um heiminn. Áherslan er lögð á sígildar íslenskar lopapeysur en einnig má finna útfærslur í léttari og látlausari stíl. Flestar uppskriftanna eru bæði í stærðum fyrir konur og karla.