Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Lokakeppni HM í Katar 2022 HM bókin

Forsíða bókarinnar

Lokakeppni HM 2022 er að hefjast! HM bókin inniheldur allt sem þú þarft til að verða alvöru sérfræðingur um HM í Katar 2022. Farið er yfir öll liðin í keppninni, allar stjörnurnar sem mæta til leiks, sögu keppninnar og nokkur af stærstu augnablikum hennar. Hverjir munu slá í gegn í Katar? Hvaða lið fara alla leið í úrslitaleikinn?

Auk þess er umfjöllun um helstu vonarstjörnur mótsins; sóknarmenn, miðjumenn, varnarmenn og markmenn. Menn eins og Ronaldo, Mbappe, Messi, Son, Depay, Gnabry og fleiri. Þú skrifar svo niður hvernig leikirnir fara í úrslitablaðið aftast í bókinni. Góða skemmtun á HM 2022!