Hobbitinn

Forsíða kápu bókarinnar

Sérstök viðhafnarútgáfa af þessum einum af turnum bókmenntasögunnar er nú fáanleg aftur hjá Kveri bókaútgáfu eftir að hafa selst upp fyrir síðustu jól (’25). Sérlega glæsileg útgáfa og tilvalin í gjafir. Þýðing Solveigar Sifjar Hreiðarsdóttur með ljóðaþýðingum Braga Valdimars Skúlasonar hefur hlotið einstaklega lofsamlegar viðtökur.

Í holu einni í jörðinni bjó hobbiti … Svona byrjar sagan ógleymanlega um Bilbó Bagga, lágvaxna hobbitann, þennan friðelskandi og rólynda náunga sem býr í notalegri og ástkærri hobbitaholu sinni. Hann veit fátt betra en að borða og fá til sín gesti, enda gestrisinn með afbrigðum. Ekkert er fjær huga hans en að halda í ævintýraför, þar að auki ævintýraför sem leiðir hann langt frá holu sinni. Dag einn breytist þó líf hans þegar vitkinn Gandalfur birtist ásamt þrettán dvergum og heimtar að hobbitinn haldi með þeim í hættulegan leiðangur til að ná gríðarlegum fjársjóði sem drekinn Smeyginn liggur á.