Höfundur: Solveig Sif Hreiðarsdóttir

Hobbitinn

Viðhafnarútgáfa

Sérstök viðhafnarútgáfa eins af turnum bókmenntasögunnar er nú fáanleg hjá Kveri bókaútgáfu, en fyrsta útgáfa seldist upp fyrir síðustu jól (’25). Sérlega glæsileg útgáfa og tilvalin gjöf. Þýðing Solveigar Sifjar Hreiðarsdóttur með ljóðaþýðingum Braga Valdimars Skúlasonar hefur hlotið einstaklega lofsamlegar viðtökur.

Kalli og súkkulaðifabrikkan

Þetta dásamlega og sígilda ævintýri hefur nú verið gefið út í nýrri þýðingu, sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu. Vönduð útgáfa með skemmtilegri myndlýsingu, stóru letri, texta sem brotinn er upp með stórri leturstærð og góðu línubili. Upplögð til upplestrar fyrir börn frá 6 ára aldri og unga lesendur á aldrinum 8-12 ára.

Loki. Leiðarvísir fyrir prakkara: Hvernig skapa skal kaos

Sprenghlægileg bók um æsi og þursa sem eru komnir hingað til okkar í Miðgarð í líki „venjulegrar“ fjölskyldu. Í þetta sinn verður mikið kaos og hver á að bjarga málunum? Ríkulega myndlýst bók í anda dagbóka sem gerir hana þægilega aflestrar fyrir sjálfstæða lesendur. Lestraraldur 8-12 ára. Fimmta bókin í frábæru ritröðinni um Loka.

Rumpuskógur: Partíljónin

Alltaf er nóg að gerast í Rumpuskógi, þar sem margvísleg dýr og fuglar búa í þokkalegri sátt og samlyndi. Í dag verða haldin hvorki meira né minna en þrjú partí en almáttugur! Verður það of mikið fyrir Stínu-pínu partíkráku? Fyndið, skemmtilegt og mikið myndlýst gamanævintýri. Fjórða bók í ritröð um Rumpuskóg. Upplestur f. 6+ ára, lestraraldur 7+.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Hobbitinn J.R.R. Tolkien Kver bókaútgáfa Hobbitann eftir J.R.R. Tolkien þarf vart að kynna. Góðu fréttirnar eru að nú er bókin loks fáanleg á ný fyrir lesendur á Íslandi. Í nýrri þýðingu Solveigar Sifjar Hreiðarsdóttur með ljóðaþýðingum Braga Valdimars Skúlasonar. www.kver.is
Loki: Leiðarvísir fyrir prakkara – hvernig afla skal óvina Louie Stowell Kver bókaútgáfa Fjórða bókin í ritröðinni um Loka. Honum gengur ekki vel að vinna í sjálfum sér og nú er svo komið að hann þarf að leysa eftirfarandi verkefni: 1. Endurheimta vinskap Georgínu. 2. Lifa af hólmgöngu gegn hefnigjörnum álfi sem beitir göldrum. 3. Bjarga heiminum frá illum öflum. www.kver.is
Norðanvindurinn Alexandria Warwick Krummi bókaútgáfa Dystópísk fantasía með krydduðu, ástarsögulegu ívafi. Byggð á mótífum úr Fríðu og dýrinu og goðsögninni um Hades og Persefónu. Lífsbarátta Músu frá Jaðarskógi hefur verið erfið. Foreldrar hennar létust þegar hún var unglingur og hún hefur þurft að annast tvíburasystur sína og sjá til þess að þær lifðu af harðan og eilífan veturinn.
Rumpuskógur: Árás fýluskrímslisins Nadia Shireen Kver bókaútgáfa Stórfótur leikur lausum hala í Rumpuskógi! En mikið stendur til því íkornapar eitt ætlar að gifta sig með pompi og prakt. Ætli skrímslið bjóði sér í brúðkaupið? Eitt er víst og það er að Teddi og Nanna og vinir neyðast nú til að halda á vit óvissunnar til þess að bjarga Rumpuskógi frá þessu hræðilega og illa lyktandi fýluskrímsli. www.kver.is