Una og Ormur #2 Hreiður, egg og æðardúnn

Forsíða kápu bókarinnar

Una og Ormur eru í næturgistingu hjá ömmu og afa og fá að sofa með góðu sængina hennar ömmu. En af hverju er sængin hennar svona dásamleg? Er hún kannski troðfull af silkimjúkum skýjum? Hreiður, egg og æðardúnn rekur á fjörugan og myndríkan hátt ferðalag æðardúnsins frá hreiðrunum í æðarvarpinu til sængurinnar og svefnpokans.