Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hrein

Forsíða kápu bókarinnar

Estela situr inni, borin þungum sökum. Hún rekur sögu sína frá því hún flutti til borgarinnar og réð sig í vist á heimili velstæðra hjóna. Þar vann hún húsverkin og sinnti barni í sjö ár, sem var langur tími þegar valdaójafnvægið er yfirþyrmandi og félagsleg einangrun algjör. Hún ætti að vera farin aftur heim en einn daginn er það orðið of seint.

„Það á ekki að elska yfirboðara sína. Þetta fólk elskar bara hvað annað.“

Estela García er í slæmum málum. Hún situr bak við lás og slá, borin þungum sökum. Það eina sem Estela getur gert í stöðunni er að segja frá og vona að einhver hlusti, rekja sögu sína frá því hún flytur af æskuheimilinu sunnar í landinu til höfuðborgarinnar Santiago og ræður sig í vist á heimili velstæðra millistéttarhjóna sem eiga von á barni. Þar hefur hún unnið húsverkin og sinnt dóttur hjónanna í sjö ár, sem er langur tími þegar valdaójafnvægið er yfirþyrmandi, félagsleg einangrun nær algjör og enginn á heimilinu metur hana að verðleikum. Estela veit vel að hún ætti fyrir löngu að vera farin heim í sveitina. En einn daginn er það orðið of seint.

Alia Trabucco Zerán, fædd 1983, er ein þeirra mörgu kvenhöfunda frá Rómönsku Ameríku sem hafa á undanförnum misserum sigrað hjörtu lesenda víða um heim. Hún er lögfræðimenntuð og lét til sín taka á sviði mannréttindabaráttu áður en hún sneri sér að bókmenntaskrifum. Hrein er önnur skáldsaga hennar.