Hús

Forsíða kápu bókarinnar

Forvitnileg bók sem opnar börnum jafnt sem fullorðnum heim íslenskrar byggingarsögu frá landnámi til dagsins í dag. Hér kynnumst við 40 ólíkum húsum sem eru eða voru heimili fólks. Öll hafa þau sögu að segja af tísku og tíðaranda, því íslensk húsasaga er samfélagsspegill sem hjálpar okkur að fá betri skilning á umhverfi okkar.

Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur og Guðni Valberg arkitekt hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir frjótt samstarf en þau eru höfundar hinna vinsælu bóka Reykjavík sem ekki varð og Laugavegur. Í bókinni HÚS taka þau höndum saman við teiknarana Atla Sigursveinsson, sem teiknar öll húsin í bókinni, og Diddu Flygenring, sem fylgir lesendum í gegnum sögu þeirra.