Hver vegur að heiman er vegur heim

Forsíða kápu bókarinnar

Einlæg glíma við mannlega tilveru. Höfundur segir af alúð og auðmýkt frá djúpstæðri reynslu sem hann varð fyrir. Hann segir sögur um baráttu venjulegs fólks við afleiðingar áfalla og aðstæður sem enginn velur sér og bendir á hvernig styðja má fólk í erfiðum aðstæðum og styrkja tengsl.

Höfundur, Vigfús Bjarni Albertsson deilir í þessari bók bæði þekkingu og reynslu af glímu fólks við þjáninguna, sorgir og tilgang lífsins. Hann býður lesandanum með sér í ferðalag þar sem hann kynnir af einlægni eigin áskoranir og sjálfsskoðun í öldugangi lífsins. Höfundur segir af nærgætni sögur af aðstæðum fólks og atburðum sem mörgum virðast kunnuglegar. Frásagnirnar byggjast bæði á fræðilegri menntun höfundar og tuttugu ára reynslu af sálgæslu, en hann hefur þjónað sem sjúkrahúsprestur, forstöðumaður við Sálgæslu- og fjölskylduþjónustu kirkjunnar, unnið í mannauðsmálum kirkjunnar og sem kennari í sálgæslufræðum.

Í bókinni fylgjast lesandinn og höfundur að og staldra reglulega við. Hugleiddar eru spurningar eins og hver er ég, hver ert þú og hver er guð, æðri máttur. Í frásögnum er vitnað til sálgæslufræða og sagt frá reynslu. Bókin getur því höfðað til allra sem hafa áhuga á mannlegri tilveru, hvort sem um er að ræða fagfólk eða manneskjur sem gleðjast og þjást. Lífið er ferðalag fólks sem felur í sér áþekka reynslu, sama hvaða lífsskoðun fólk aðhyllist.