Hvíldin

Forsíða kápu bókarinnar

HVÍLDIN er fimmta glæpasaga Ragnheiðar Gestsdóttur. Fyrri bækur hennar eru Úr myrkrinu, Farangur, Blinda og Týndur. Farangur hlaut Blóðdropann árið 2021 og var tilnefnd til Glerlykilsins 2023.

Rúm vika í hvíldarinnlögn á dvalarheimilinu Vin. Kannski ekki beinlínis tilhlökkunarefni, en hún er bundin við þennan árans stól og getur ekki verið ein heima meðan sonurinn fer til útlanda. Og hún hefur alveg nóg að lesa og verkefni sem þarf að ljúka.

Það er verst að maturinn er nánast óætur …

Enn ein vinnuvikan fram undan. Langir dagar, of lítill tími með barninu, reddingar til að geta tekið aukavaktirnar. Lífð er línudans og það má ekkert út af bera. Einn óvæntur gluggapóstur getur kollvarpað tilverunni …

Það er margt sem aðskilur þær prófessor MMM og Piu; áratuga aldursmunur, stétt og staða. En þegar elliheimilið verður vettvangur glæps kemur óvænt vinátta þeirra til bjargar. Og tveir skarpir kollar, annar hvítur og hinn blár, leggjast á eitt við að ráða fram úr ókinni morðgátu.