Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Í landi sársaukans

Forsíða kápu bókarinnar

Alphonse Daudet (1840-1897) var einn þekktasti rithöfundur Frakka á ofanverðri nítjándu öld, einkum fyrir smásögur, skáldsögur og leikrit. Nú á tímum eru mörg af verkum hans fallin í gleymsku, en þó ekki hið sígilda Bréf úr myllunni minni sem kom út á íslensku fyrir margt löngu og svo þessi sérstæða bók.

Í landi sársaukans, sem birtist fyrst mörgum áratugum eftir lát höfundarins. Um er að ræða einskonar dagbókarskrif þar sem hann lýsir líðan sinni og í raun áralangri baráttu við banvænan sjúkdóm sem herjaði ekki síst á hina frjálslyndu listamenn fyrr á tímum. Mögulega voru þessi skrif frá hendi Daudets aðeins ætluð til úrvinnslu seinna meir, efni í skáldverk sem aldrei varð til, en þykja í seinni tíð merkileg heimild auk þess að vera stíluð af stakri snilld. Þýðing og inngangur eftir Gyrði Elíasson.