Í stríði og friði fréttamennskunnar

eða uppgjörið við alla mína fjölmiðlatíð

Forsíða bókarinnar

Sigmundur Ernir Rúnarsson fléttar saman æviminningum sínum og uppgjöri við einstaklega litríkan fjölmiðlaferil í návígi við stærstu atburði í lífi þjóðarinnar. Um leið er frásögnin Íslandssaga sem nær frá forpokuðu klíkusamfélagi karlveldisins til frelsis og fjölbreytileika sem þó glímir alltaf við afturhaldið.

Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur sett sterkan svip á íslenska fjölmiðla og þjóðlíf frá því hann hóf blaðamennsku og byrjaði að senda frá sér ljóð og sögur um og upp úr 1980. Hér fléttar hann saman æviminningum sínum og uppgjöri við einstaklega litríkan fjölmiðlaferil þar sem hann hefur staðið í návígi við stærstu atburði í lífi þjóðarinnar og alla helstu áhrifamenn hennar. Þetta er jafnframt saga af einu helsta breytingaskeiði Íslandssögunnar, frá forpokuðu klíkusamfélagi karlaveldisins á seinni hluta síðustu aldar þegar flokksblöðin stýrðu umræðunni, til alls þess margþætta frelsis og fjölbreytileika sem fékk að lokum að njóta sín í samfélaginu, en glímir samt enn við afturhaldið.