Innanríkið Alexíus

Forsíða kápu bókarinnar

Faðir höfundar vaknar eina nótt við að ókunnugur maður stendur í svefnherbergisdyrunum á heimili hans við Skólavörðustíg. Aldarfjórðungi síðar rifjar sonurinn upp þessa reynslu föðurins og fer á stefnulaust flakk um fortíð og nútíð. Hér sýnir Bragi Ólafsson á sér nýja hlið; hann beinir athyglinni að því sem ekki er endilega skáldskapur.

Bragi Ólafsson er fæddur í Reykjavík árið 1962. Á tæpum fjórum áratugum hefur hann sent frá sér hátt í þrjátíu bækur, jafnt ljóð, smásögur og skáldsögur, og einnig fengist við leikritaskrif og þýðingar. Um árabil starfaði hann sem tónlistarmaður, meðal annars með hljómsveitunum Purrkur Pillnikk og Sykurmolarnir, og hefur frá árinu 1986 verið félagi í útgáfufyrirtækinu Smekkleysu, sem hefur haft víðtæk og djúp áhrif í menningarlífi landsins.