Irpa
Edda þráir tilbreytingu í lífið og þegar hún sér litla eyju auglýsta til sölu sannfærir hún Atla um að flytja þangað. Á Varpey vex allt og dafnar og parið hefst handa við að breyta hlöðunni í gistiheimili. Þegar Edda tekur að sjá hvítklæddri konu bregða fyrir verður hún smám saman sannfærð um að þau deili eyjunni með einhverjum sem vilji þeim illt.