Íslensk óhamingja
Spurningin er ekki hvort Aþena geti linað sársaukann – heldur hversu langt hún er tilbúin að ganga til þess að gleyma honum alveg.
Þegar óhamingjan er allsráðandi er aðeins ein leið út: Að vefa nýjan raunveruleika og klæða sig upp sem fullkomið eintak í heimi sem enginn tekur eftir að er að molna í sundur.
Íslensk óhamingja er áleitin, beinskeytt og sprenghlægileg ádeila á samtímann – saga um firringu, sjálfsmynd, sveigjanlegan sannleika og tilhneigingu okkar til að flýja okkur sjálf.