Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Klúbburinn Jól á Tenerife

Forsíða kápu bókarinnar

Jól á Tenerife er sjálfstætt framhald Klúbbsins þar sem kraumandi ástríða tekur völd í hverjum kafla. Karen er í sárum eftir dvöl sína á Siglufirði, sem lauk með hneyksli í tengslum við kynlífsklúbb sem þar var starfræktur. Hún stendur á krossgötum þannig að hún ákveður að breyta rækilega um umhverfi og eyða nokkrum vikum yfir hátíðarnar á Tenerife

Það er þó hægara sagt en gert að skilja við fortíðina. Sverrir, heillandi og leyndardómsfullur maður sem hún féll fyrir á Siglufirði, er henni enn ofarlega í huga og ekki er víst að hún geti fundið sér nýja braut án hans. En ástin fylgir eigin lögmálum og fyrr en varir er líf Karenar líkt og í svarthvítri bíómynd þar sem blóm og búbblur verða daglegt brauð.

Allar rósir hafa þyrna og jafnvel í funheitu ferðalag á framandi strandir elta draugar fortíðar. Á Tene eru líka ýmsir villtir möguleikar í boði...