Kæri fáviti

Forsíða kápu bókarinnar

Þrjár ólíkar raddir segja frá – útskúfaður rithöfundur, þekkt leikkona og róttækur femínisti. Í tölvupóstsamskiptum þeirra á milli birtist heimur gegnsýrður af kynbundnu valdi og afleiðingum #MeToo, en þar eru líka fíkn, vinátta og leit að merkingu í heimi sem virðist oft vera að hrynja. Snjöll samtímasaga frá einum áhrifamesta höfundi Frakklands.

Bókin varð að metsölubók og hratt af stað mikilli umræðu um kynferðislega áreitni og jafnrétti á tímum samfélagsmiðla.