Kistan

og fleiri sögur

Forsíða kápu bókarinnar

Þessi bók hefur að geyma safn glæpasmásagna eftir Ragnar Jónasson og kom út í tilefni af stórafmæli hans í sumar. Sögurnar nítján hafa orðið til á löngum tíma og skrifaðar af ýmsum tilefnum. Allar hafa þær birst erlendis og um helmingur á íslensku í blöðum og tímaritum.

Tvær sagnanna skrifaði Ragnar í samstarfi við aðra, Yrsu Sigurðardóttur og Víking Heiðar Ólafsson. Titilsagan Kistan var tilnefnd til Gullrýtingsins sem besta glæpasmásaga ársins 2026 í Bretlandi. Sögurnar draga vel fram helstu styrkleika Ragnars sem glæpasagnahöfundar og ráðgátumeistarinn fer á kostum í knöppum sögum með óvæntum endalokum.