Klassísk tónlist
Á ferðalagi um tónlistarsöguna
Aðgengilegt og fróðlegt rit þar sem leyndardómum klassískrar tónlistar er lokið upp. Magnús er ástríðufullur fræðari; fundvís á áhugaverðar staðreyndir, skemmtilegar sögur og ekki síst vandaðar upptökur, sem hann hefur sett saman í spilunarlista sem má nálgast á streymisveitum. Bókin hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja auka við þekkingu sína.