Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Kortlagning heimsins

Frá Grikkjum til Google Maps

  • Höfundur Reynir Finndal Grétarsson
Forsíða bókarinnar

Hvers vegna lítur kort af heiminum út eins og það gerir? Hví er norður upp og Ameríka vinstra megin? Af hverju er Evrópa stærri á korti en á hnettinum?

Kortlagning heimsins eftir Reyni Finndal Grétarsson svarar öllum þessum spurningum, en bókin geymir fjölmörg kort og fágætar sögur sem endurspegla þau kort sem maðurinn hefur skapað allt frá Grikkjum til Google Maps.