Kortlagning Íslands

Íslandskort 1482-1850

Forsíða kápu bókarinnar

Í þessari veglegu bók eru helstu Íslandskort sögunnar birt saman í allri sinni dýrð. Saga þess hvernig lögun Íslands þróaðist á kortum á fjórum öldum er heillandi og viðburðarík. Reynir Grétarsson hefur um árabil safnað Íslandskortum og rekur hann á lifandi og skemmtilegan hátt þessa merku sögu.

Þessi glæsilega bók er nú loksins fáanleg að nýju.

Ísland birtist fyrst á prentuðu landakorti árið 1482. Fjórum öldum síðar hafði tekist að mæla landið og strandlínu þess nægilega vel til að draga upp kort sem sýndi vogskorna strönd Íslands eins nákvæmlega og unnt var. Á þessum tíma gerðu kortagerðarmenn um alla Evrópu glæsileg og fagurlega myndskreytt kort af Íslandi og Norður-Atlantshafi sem eru augnayndi og sum hver ein glæsilegustu kort sem nokkru sinni hafa verið prentuð.