Krimmasmásögur

Forsíða kápu bókarinnar

Bráðsmellnar kósíglæpasögur!

Hvenær drepur maður mann og hvenær ekki? Hér segir af breyskum karakterum og fólki sem verður öðrum að bana – í grandaleysi.

Að baki búa ýmsar ástæður: heift, hatur, hefnd, öfund, afbrýðisemi og logsár girnd, græðgi, árátta, spilling en líka óyndi, andúð og útskúfun.

Þetta eru svonefndar kósíglæpasögur, stuttar með húmorísku ívafi, nema síðasta sagan sem segir frá morðfýsn raðmorðingja í anda Axlar-Björns.

Höfundur skrifar af lipurð í laufléttum stíl.

Ragnhildur Bragadóttir er sagnfræðingur og upplýsingafræðingur að mennt og hefur m.a. starfað sem skjalastjóri, þýðandi og ritstjóri. Hún hefur áður sent frá sér skáldsögun Klökkna klakatár.