Krossgötur

Forsíða kápu bókarinnar

Rut og Alma eru bæði skólasystur og nágrannar en tala aldrei saman. Hlynur, kærasti Ölmu, er efnilegur handboltamaður en hefur engan áhuga á náminu. Fannar, skólabróðir þeirra, þráir athygli og viðurkenningu en viðhorf hans og bakgrunnur gera honum erfitt fyrir. Grípandi saga um ungt fólk og þær ólíku áskoranir sem það tekst á við.