Krúsilíus og fleiri barnasöngvar
Þetta sígilda og vinsæla nótnahefti er nú loksins fáanlegt aftur eftir langt hlé, en í því er fjöldi skemmtilegra laga sem Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg sendu frá sér á hljómplötunum Berrössuð á tánum og Bullutröll. Hér birtast þau í aðgengilegum útsetningum Gunnars Gunnarssonar ásamt bókstafshjómum.