Lesbíur óskast
Þegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að skilja við eiginmann sinn og nýflutt í litla kjallaraholu. Hún kann ekki að elda, íbúðin er í rúst, hún efast um allar ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu og svo kann hún ekki að tala við lesbíur.