Leyndardómur bláu lestarinnar
Belgíski rannsóknarlögreglumaðurinn Hercule Poirot er á leið til frönsku Rívíerunnar. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að hvílast og njóta lífsins um borð í lúxuslestinni bláu, Le Train Bleu. Í lestinni hittir hann fyrir dóttur þekkts bandarísks auðmanns, Ruth Kettering. Hún er á leið til fyrrverandi elskhuga síns.
Morguninn eftir finnst hún myrt og dýrmætir skartgripir hennar eru horfnir. Sögur fara á kreik um að ókunnugur maður hafi verið á sveimi í lestinni. Það er allt og sumt sem Poirot hefur að byggja á. Smám saman kemur í ljós ótrúlegur vefur blekkinga og leyndarmála sem Poirot þarf að greiða úr til að afhjúpa morðingjann.
Agatha Christie (1890–1976) er vinsælasti skáldsagnahöfundur allra tíma. Aðeins Biblían og verk Shakespeares hafa selst í fleiri eintökum á heimsvísu en bækur Agöthu Christie. Meira en milljarður eintaka hefur selst af bókum hennar á ensku og annar milljarður til í þýðingum á um eitt hundrað tungumál.
„Sérstaklega áhugaverð spennusaga í klassískum anda.“
New York Herald Tribune
„Agatha Christie er ódauðleg.“
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni