Höfundur: Agatha Christie

Háskalegt haust

Morð og ráðgátur frá drottningu glæpasagnanna

Haustið er tími þokukenndra morgna, fallinna laufa og notalegra kvölda heimafyrir þegar vindurinn gnauðar úti. En þegar dagarnir styttast og næturnar lengjast verða skuggarnir dekkri og kyrrðin leyndardómsfyllri. Hercule Poirot, ungfrú Marple og fleiri ástsælir spæjarar Agöthu Christie takast hér á við ráðgátur þar sem ekkert er eins og sýnist.

Leyndardómur bláu lestarinnar

Hercule Poirot er á leið til frönsku Rívíerunnar. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að hvílast og njóta lífsins um borð í lúxuslestinni bláu. Þar hittir hann fyrir dóttur þekkts bandarísks auðmanns, Ruth Kettering. Hún er á leið til fyrrverandi elskhuga síns. Morguninn eftir finnst hún myrt og dýrmætir skartgripir hennar eru horfnir.

Varhugavert vor

Morð og ráðgátur frá drottningu glæpasagnanna

Með vorinu hækkar sól á lofti, gróðurinn tekur við sér og lífsgleðin eykst í hjörtum mannanna. En illskan er þó aldrei langt undan. Rétt eins og á öðrum árstímum takast Hercule Poirot, ungfrú Marple, Tommy og Tuppence og margar aðrar ógleymanlegar sögupersónur Agöthu Christie á við ískyggilegt ráðabrugg og háskalega glæpi.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Af hverju báðu þau ekki Evans? Agatha Christie Ugla Var það slys að ókunnugur maður féll fram af klettabrún og dó? Eða bjó eitthvað ískyggilegt að baki? Grunsemdir vakna í huga glaðværa vinaparsins, Bobbys og Francis, sérstaklega í ljósi þess hvað maðurinn sagði í andarslitrunum: „Af hverju báðu þau ekki Evans?“ Hver var Evans? Hvað átti maðurinn eiginlega við?
Tjaldið fellur Síðasta mál Poirots Agatha Christie Ugla Vinirnir Hercule Poirot og Hastings eru komnir á Styles-setur þar sem þeir leystu sína fyrstu morðgátu. Bæði Poirot og Styles-setrið hafa séð betri daga. En þótt Poirot sé kominn í hjólastól vegna liðagigtar eru „litlu gráu sellurnar“ hans enn í fullu fjöri. Hann veit að einn gestanna er fimmfaldur morðingi sem hyggur á enn eitt morðið ...