Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Einkaspæjarastofa Suðurgötusystranna Leyndardómurinn um stóra sjóbirtinginn

Forsíða kápu bókarinnar

Eftir að hafa tekist að leysa sitt fyrsta mál, ráðgátuna um yfirgefna hundakúkinn, er Einkaspæjarastofa Suðurgötusystranna nú orðin að veruleika. Strax á fyrsta degi stofunnar fá þær Karólína, Rósalína og Abelína sitt fyrsta mál í hendurnar: Í nokkra daga hefur legið við slagsmálum á markaðnum. Númeramiðakerfið er bilað og allir fá sama númerið!

Framkvæmdastjóri markaðarins í hverfinu, Bogi Seljendal, bankar upp á hjá þeim og aumingja maðurinn er óskaplega örvæntingarfullur, enda liggur við slagsmálum vegna númeranna. Suðurgötusysturnar samþykkja að taka málið að sér – og þær komast fljótt að því að á bakvið þetta einfalda vandamál leynist annar og mun hættulegri leyndardómur!

Skyldu þær lifa af? Tekst þeim að leysa málið? Hvernig er best að elda sjóbirting?