Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Lífshættulegt loforð

Forsíða kápu bókarinnar

Ugla sat á kvisti … Aðeins ég veit hver fær að lifa og hver mun deyja.

Angela Marsons, margfaldur metsöluhöfundur, sendir frá sér enn eina æsispennandi glæpasöguna.

Þegar þekktur læknir finnst myrtur á hroðalegan hátt í skóglendi bregður Kim Stone rannsóknarfulltrúa í brún við að uppgötva að fórnarlambið er Gordon Cordell – maður sem tengdist eldra sakamáli þar sem ung skólastúlka lét lífið. Gordon á sér vafasama fortíð en hver gat viljað hann feigan?

Þegar rannsókn málsins er hafin lendir sonur Gordons í alvarlegu bílslysi og berst fyrir lífi sínu. Kim er handviss um að slysið hafi verið af mannavöldum.

Svo finnst konulík við grunsamlegar kringumstæður og Kim áttar sig á tengslum fórnarlambsins við Russels Hall-sjúkrahúsið þar sem Gordon vann.

Kim og liðið hennar syrgja enn fallinn félaga sinn en þurfa að kljást við einn hættulegasta raðmorðingja sem þau hafa fyrirhitt. Allt er í húfi. Tekst Kim að halda liðinu sínu saman og finna morðingjann áður en næsta fórnarlamb fellur í valinn?

Morðinginn fer í gegnum fórnarlömbin á ógnarhraða og hefur ekki lokið sér af.

Angela Marsons, margfaldur metsöluhöfundur, sendir frá sér enn eina æsispennandi glæpasöguna.