Lífssaga Didda Frissa

Kröftugur til sjós og lands

Forsíða bókarinnar

Sigurður Friðriksson – öðru nafni Diddi Frissa – er þjóðsagnapersóna suður með sjó. Hann ólst upp við hermang og amerískar drossíur í Sandgerði og lét við það sitja að læra margföldunartöfluna í skóla. Á hverju ári var hann rekinn úr skólanum. Fáir höfðu trú á honum, enda lítill skilningur á lesblindu, ofvirkni og athyglisbresti á þeim árum.

Bryggjan og slorið urðu athvarf hans.

Tólf ára gamall var hann kominn til sjós – og þar fann hann sig. Um svipað leyti byrjaði hann að drekka. Hann lifði hátt og tefldi oft á tæpasta vað, en það hafði ekki áhrif á sjómannsferilinn sem var bæði farsæll og árangursríkur. Diddi reyndist hafa sérstakt lag á að fiska meira en aðrir, ekki síst á rækjuveiðum.

Hann hætti til sjós 52ja ára og sneri sér að ferðaþjónustu. Um það og margt, margt fleira má lesa í þessari stórskemmtilegu bók þar sem Diddi segir sögur af ævintýralegu lífi sínu og samferðarmenn segja sögur af honum sjálfum svo úr verður kostuleg sagnaskemmtun, krydduð fjörlegum stílsmáta Ásmundar Friðrikssonar alþingismanns.

Fjöldi mynda prýðir bókina.

„Að vera með Didda Frissa til sjós er eins og háskólagráða.“ – Jón Benediktsson

„Þegar Diddi mætir er það eins og sólin sé að minna á sig.“ – Ragnar Axelsson

„Engan helvítis aumingjaskap!“ – Guðjón Vilhelm Sigurðsson

„Diddi Frissa er þyngdar sinnar virði í gulli.“ – Guðni Ágústsson