Morðin í Åre Líknarinn

Forsíða kápu bókarinnar

Dularfull andlát meðal aldraðra á Åre-svæðinu, sænsku Ölpunum, vekja grunsemdir lögreglukonunnar Hönnu Ahlander um að ekki sé allt með felldu. Sívaxandi togstreita í sambandi hennar og Daniels Lindskog, nánasta samstarfsmanns hennar, gerir þeim hins vegar erfitt að einbeita sér að fullu að rannsókn málsins.

En klukkan tifar og til að koma í veg fyrir fleiri dauðsföll verða þau að leysa úr ágreiningsefnunum og vera samstiga í rannsókninni. Líknarinn er fimmta bókin í hinni æsispennandi seríu Morðin í Åre. Fyrri bækurnar, Helkuldi, Daladrungi, Yfirbót og Mýrarljós, hafa fengið frábærar viðtökur.

Glæpahöfundur ársins í Svíþjóð 2024.

Vivica Sten er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkur hennar um Morðin í Åre hefur slegið í gegn og hefur Netflix hefur nú gert sjónvarpsþáttaröð byggða á bókunum. Mjög vinsælir sjónvarpsþættir voru líka gerðir um Sandhamn-bókaflokkinn.

„Viveca Sten er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Svíþjóðar og hún kann að segja sögu sem fær mann til að fá hroll þegar einmana eldri borgari heyrir í dyrabjöllunni ...“

Dagens Nyheter

„Viveca Sten skrifar glæpasögur í hæsta gæðaflokki. Hún leggur mikla alúð við persónusköpun, tvinnar saman ólíka söguþræði án þess að það bitni á spennunni allt til hádramatískra endaloka. “

Sænska glæpasagnaakademían